....my website brings all the boyz to the yard!
....and they're like, "it's better than yours!" Damn' right!
Já.. helgin var mjög upplífgandi og ég saug í mig alla hlýju vina minna til að taka með mér í nesti til Londres. Ég er farin að tala svo mikið um skilnað minn við Klakann (í bili) að ég er komin með leið á því sjálf.
Að öðru meira æsandi þá var galeiðan tekin með trompi í gærkveldi, nýársfögnuður hjá 1001nótt, partý hjá vini Vicks,Vegamót og Pricks með magnaða músík. Svo var haldið snemma heim í þristinum og Krullinn bauð Veddaranum upp á gistingu í Karfavogi þar sem amma hennar heldur uppi stemmningunni með óþrjótandi birgðum af mat og þar af leiðandi lúxus bakkelsi í hvert skipti sem heiðursgesturinn (moi) kíkir á mannskapinn. Ég sofnaði við hlið minnar bestu og við héldumst í hendur svona til að passa hvor aðra.. aaaaaww.
Svo var eitur slökunin tekin í dag þar sem við rúntuðum um bæinn, bökuðum peeezzu og slúttuðum deginum hjá Rakel og Vicks á Keilugrandanum. Spilamennskan var allsráðandi og aldrei hefur actionary verið eins spennandi og nú í kveld. Ég og Vicks vorum saman í liði og þrátt fyrir að sæst hafi verið á jafntefli undir lokin þá er það nokkuð ljóst að við unnum.
Nú tekur svo lokavikan við þar sem ég mun drukkna í eigin umsóknarham en það er BA gráðan í London Metropolitan -Music Technology ! haustið 2004. Þetta hlýtur bara að vera besta námið samfara upptökum og óskipulagi!
Þýðir ekkert annað en að taka árið 2004 með trompi. Veddarinn vill ekki láta bendla sig við lélegt. Enda væri það lélegt.
Innblástursinnskot: Vertu betri maður í dag!
12.1.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli