.....dr.phil
Hlýr faðmur ömmu og afa í Hvassaleiti mun veita okkur mæðgum skjól í nótt. Við ætlum að lúlla saman ég og mútta, hún fer í vinnu og ég klára mín erindi í borginni. Svo fer maður bara að pakka.
Vorum að hneykslast yfir Dr.Phil þættinum hér í kveld þar sem litlar smástelpur voru að taka þátt í fegurðarsamkeppnum. Afi er víst aðdáandi Dr.Phil og talaði vel til mannsins sem honum finnst vera afskaplega vitur um hin ýmsu málefni lífsins.
Ég vildi að ég væri Dr.Phil stundum. Kæmi bara með öll svör heimsins á silfurfati þegar eitthvað væri að rugla í haus.
Innblástursinnskot: Vill maður virkilega alltaf hafa rétt fyrir sér í stað þess að vilja bara vera hamingjusamur?
13.1.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli