....lífið er svo faaaaallegt!
Ég er að pakka.... það er áliðið. Ég er þreytt manneskja með alltof mikið dót.
Heilt stúdíó í farteskinu.
Rakel og Victor voru hjá okkur fjölskyldunni í dag, kíktu í trúlofunarkaffi...(apple pie a la Vedder).... ég fer að setja inn myndir við tækifæri af ektaparinu en þau fóru hér Reykjaneshringinn með Veddarann sem fararstjóra. Ég villtist aðeins með þau og Vicks hélt að ég ætlaði að drepa þau í hrauninu. Það varð nú ekki svo stórtækt og við skoðuðum sólsetrið í staðinn við Reykjanesvita og gengum yfir "Brú milli heimsálfa" sem er einmitt nákvæma staðsetningin á klofningu Ameríku og Evr-Asíu fyrir billjónum árum síðan.
Jæja.. svefninn kallar víst...en ég er ekkert sérstaklega hrifin af honum þessa dagana. Finnst ætíð eins og ég eigi eitthvað óklárað áður en ég leyfi Óla lokbrá að sinna sínu starfi.
Innblástursinnskot:Þó að við séum ekki alltaf "falleg" þá getur lífið alveg verið það.
15.1.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli