22.7.04

-meira zin zin zin-
 
"Því þó það væri ekki
nema þessa einu nótt,
þá væri ég svo viljug
undir bjartri stjörnugnótt...."

Allt að gerast í Reykjanesbæ. Veðrið er dásamlegt. Veddarinn að grúska úti í garði. Krulli var í einnar nætur stoppi í Köben og ætti að vera að lenda hér um bil. Búið er að úthluta kellunni einstaklingsíbúð á stúdentagörðum og er hátíð mikil í bæ. Trútsakrullarassgatið fær góðan sófa (er reyndist okkur fjölskyldunni vel í Álftamýrinni hér í den) gefins frá okkur og er ég að heilaþruma hvernig honum verður léttilega vippað yfir til Reykjavíkur! Svo er okkur Rokkaranum boðið í mat hjá Kidda strumpi (",) -smá endurfundir síðan um Þjóðhátíð í Eyjum 2001 að mig minnir. Vonandi mun það gerast í kveld. Get ekki beðið eftir að sjá strumpabúninginn sem gerði allt vitlaust hjá Wake me Up crew-inu.

Einnig langar mig að kíkja á Showið með Björgvin Franz og Seth Sharp ooooog Maríu Þórðar m.a. á Hótel Borg.... en maður getur ekki gert allt í einu.

Sjáum til.

Izout

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****