-zinzinzin-
Dásamlegt alveg hreint að vera hér á Klakanum! Sólin skín, fólkið er hresst og allt lífið framundan hjá manni.
Æfingar fyrir Ljósanæturkeppnina ganga smurt fyrir sig og upptökur eru að mínu skapi. Þetta verður sveitt stemmning, 21.ágúst í Stapanum. Mæli með´essu krakkar! Svo er Ljósanóttin sjálf fyrstu helgina í september og er það hefðin hjá fjölskyldunni að bjóða öllum í humarveislu og gítarspil eftir flugeldasýninguna. Ansi líflegt það.
Ég hef gert margt hér á Klakanum góða sem hressir og kætir en aðallega verið bílstjóri annarra skemmtanafíkla - a.k.a. Föstudagur: fór á myndlistarsýningu með Bryndísi á Vínbarnum sem var mögnuð og kíkti svo til Bensa dans sem einmitt hristir á sér konfektið í Hárinu þetta sumarið en spúsan hans Birgitta Haukdal var að halda upp á afmælið sitt. Hitti þar Sæma Rokk, Bogalíus og Ólafíu (en hvar er Vigga?) og MEIR megatúttu meðal annarra. Laugardagur: hló mig máttlausa hjá Einari Andra með Valda, Hildi, Steinunni og Rokkaranum.
Á sunnudeginum bauð ég svo Hildi og Rakel í bátsferð og var Sigfús minn fagri bróðir, fararstjóri. Stúlkurnar fengu að "keyra og allt!!!" og var undirrituð ansi aum í bossanum eftir að Rokkarinn mundaði stýrið. Ég sýndi stúlkunum aðeins út fyrir Reykjanesið og sigldum við inn í Njarðvíkina þar sem verið er að smíða sýningarhús fyrir Íslending(info: víkingaskipið EINA og góða sem sigldi vestur um höf og Reykjanesbær keypti síðan af eigandanum) en okkur láðist eigi að njóta höfrunganna sem spretta þarna upp eins og mýflugur þegar maður mundar gúmmíbátinn á úthafinu, sökum skornum skammti eldsneytis, enda Sigfús og Alexander frændi búnir að vera á bátnum síðan Alli kom hér í byrjun sumars. Gott stuð.
Svo skrapp ég í heimsókn til Helgu og Hjalta í dag og sá þar kraftaverkin tvö í fyrsta skipti. Oddur Fannar og Tómas Ingi eiga mikinn þátt í klingjandi eggjastokkum Veddarans núna. Öss! Ég veit ekki hvar þetta endar. Þarf að skella mér í eina kalda til að hemja þessi kvikindi!
Ekki er það síðra að ég hef lengt ferð mína fram á næsta mánudag og gefið hundasúrur í þær upptökur sem bíða mín í Londres.
Æ, maður er svo hress.
Ef þið finnið eitthvað magnað og titrandi dynja á rúðum ykkar þá örvæntið ekki! Þetta er bara Veddarinn á silfurgráa Yarisnum hennar múttu með bassann á 5.
PunkzinIce
19.7.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli