5.9.04

-glaðlynda hnátan með hnakka ljósan-

Það var svo yndislegt í gær á Ljósanótt og flugeldasýningin var ótrúleg. Ekki verra að hljómar Hljóma ómuðu undir sýningunni "Gamli bærinn minn". Maður varð bara meyr og meira til. Mér er farið að líða eins og ég hafi alist upp hér í Reykjanesbæ. Maður er svo sum búinn að fá ágætis sprautu í æð hvað varðar fólk héðan. Á ég vingott (á pjúra vinalegan hátt) við helming bæjarbúa og fjölskyldan er sokkin inn í Reykjanesbæ og fær ekki nóg af honum.

Nú er ég komin til að vera í mánuð og ætla mér að sjúga í mig Ísland svo ég geti tekið eitthvað með mér í lítinn poka til London og opnað svo þegar heimþráin sækir á. Það verður allverulega mikið um heimþrá spái ég.

Nú erum við fjölskyldan á leið á leikritið Vodkakúrinn með Helgu Braga og Steini Ármanni hér í bænum og ætlum við systur svo að skjótast í Reykjavíkina að því loknu.

Rokkarinn ákallar Skvísuna eins og englakór af himnum ofan og hlakka ég til að eiga hitting og heyra það nýjasta í lífi Rocky.

Lifið heil, ekkert beil (",) úúúúúúú, frasi.

Herdís Vérvör

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****