-tja,thessa einu nott?-
Nýlent frá Sikiley-öllu heldur, Sikiley, Róm, Amsterdam og er alveg hreint búin á því. Við tók svo rölt um Reykjanesbæinn en hér er allt í fullum skrúða og stemmningin óbilandi því það er Ljósanótt í Reykjanesbæ!
Sikiley var alveg að gera sig. Við lentum í næturhúmi á fimmtudagskveldi og farið var upp á hótel sem var í fjegurra stjörnu ham með sundlaug á þakinu og sundlaugarbar. Þetta var dásamlegt. Ítalskur matur, ítölsk sjávargola, ítalskt fólk (",) Stutt en laggott. Stóð bandið sig með eindæmum vel og Veddarinn tók eigi feilnótu allt kveldið. ÖSs! Ég þakka hressleika góðra manna-Valda, Franz,Jón Atla og Sigtryggur (Bogomil góði Font) var eitur á trommunum. Barði var svo slefandi kátur að venju. Herra Haff Haff var svo einnig flauelmjúkur sem hljóðmaður.
Svo fóru strákarnir að djamma í faðmi ítalskra aðdáenda og PR liðs á meðan Veddarinn lagðist til hvílu því ég varð að vera komin í Reykjanesbæ til að syngja titillag helgarinnar fyrir flugeldasýninguna í kveld. Ég beilaði því á grúppíum mínum og sá ekki eftir því er ég lagði haus á kodda. Markmiðinu er því náð og allir mjög sáttir.
OPIÐ HÚS Í HEIÐARGILINU - HUMARSÚPA OG HEIMABAKAÐAR BOLLUR ALA DÍSIRNAR Í HEIÐARGILI-eftir flugeldasýninguna..... heill hellingur af liði búinn að boða komu sína og ætlar þetta að verða gítarstemmning og hressleiki.
Nokkur böll hér í bæ og verið er að plata mann í Víkina. Mín á skilið létt klapp á bakið eftir hrikalegt ferðalag og því ætla ég að leyfa mér að vera hin hressasta.
Ljósanæturdísin
3.9.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli