-why do birds suddenly appear?-
Já, það er Karen Carpenter í loftinu þrátt fyrir óveður mikið í nótt. Ég gisti hér hjá Gvendinum og nöfnu minni Hervöru. Eru þau mikið eðalfólk og prísa ég mig sæla með slíkt afafólk.
Lára Rún, AMpop og Vínyl á GrandRokk í kveld. Mikil spenna fyrir þeim gjörning. Boðið í teiti á föstudagskveldi og búið er að skipuleggja svæsið stúlkuteiti með Spánarþema nú á laugardag í íbúð Krullans hvar við munum halda til og skreyta híbýlin með Sangríuilmi.
Er að fara að raula inn á B&L auglýsingu fyrir hann Sigtrygg félaga niður í Klink og Bank. Held þetta verði eitthvað í þessa áttina: "B&L, tralala bíllinn fyrir þig! Hallah hallah!" það er,ef mér er leyfilegt að improvisera (",)...
V
16.9.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli