-háð í náð-
Af gefnu tilefni vil ég leggja áherslu á vægi þeirra ljóða, tja, texta öllu heldur sem hér birtast. Vægi er lítið og aldrei beinlínis notað til að hreyta fúkyrðum í fólk undir rós. Veddarinn er afskaplega glaður einstaklingur og lifir eftir hinum góða frasa "love all, phrase all!" og biður hér með lesendur um að taka ekki til sín allt sem hér birtist í ljóðaformi nema þeir kjósi það frekar.
Gærkveldið var magnað og hrós mikið fær Yo!hanna fyrir að berja vitleysinga frá Veddaranum sem ætluðu sér stóra hluti. Þessi litla dama leynir á sér. Ekki lengi að mæta með hnefann á lofti... veður í þá stærstu jafnvel (",) Hrós fær einnig Krullinn fagri fyrir að láta húsnæði sitt undir Sangríuveislu. Ég uppgötvaði það í gær að ég er þrælmögnuð að blanda Sangríu og stelpurnar vissu ekki hvort þær voru að koma eða fara né hverju Veddarinn var að lauma í blönduna. En það snarvirkaði alveg hreint! Svo vel virkaði blandan að eina skvísan sem tók ekki keistið var Rokkarinn. En henni er það nú fyrirgefið enda skutlan að fljúga í dag....
Fjölskyldan er hér að búa sig undir landsleikinn hvar hægt er að sjá NBA stjörnuna sjálfa í "aksjón". Ekki amalegt það enda langt síðan maður sá karlinn á vellinum. Ég slumpa á nokkur heit lítil hjörtu í áhorfendastúkunni sem ætla sér stóra hluti í körfuboltabransanum.
Lifið heil börnin mín.
V
19.9.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli