-léttúð á mánudegi-
Fagurgalarödd móður minnar ómar hér um allt húsið: "þú ert aaaaallt sem ég áður þráááði... þú ert ósk...þú ert óóóskin mííín..". Múttuskvísan er með aragrúa af skjölum og verkefnum og situr fyrir framan ferðatölvuna sína sveitt að vinna. Alltaf er þó gefinn tími fyrir eitthvað gól og maður sleppur ekki úr klóm töfraflautunnar: "syngdu með mér Védís, þetta er svo fallegt..." Kennaraverkfallið er þess valdandi að Sigfús bróðir er í "fríi". Hann var vaknaður hér klukkan átta í morgun að skjóta körfur úti á plani. Hann hefur þetta frá systur sinni.... *hóst* ...
Gvendurinn bróðir minn hringdi í mig að loknum skóladegi áðan og eftir að hafa spurt hann "..og hvað viltu?" svona tíu sinnum uppgötvaði ég að karlgreyið ætlaði bara að "heyra í systur sinni..." Það er gott í þessum mönnum.
Nú er Veddarinn óðum að leita að píanóleikara sem má vera bæði sætur, sjarmerandi, einhleypur og barnslaus. Umsóknir verða að berast fyrir 23.sept í tæka tíð fyrir áheyrnarprufur og vel má vera að fleiri áheyrnaprufur fari fram í Lundúnaborg. Sterkur möguleiki að Veddarinn borgi undir viðkomandi fram og til baka þó að æskilegast væri að menn hefðu ráð á því sjálfir. Gjaldeyrir mun líkast til fara í útstáelsi, fjöldaferðir Big Ben, H&M og latté á kaffihúsum London yfir notalegu spjalli við Veddarann. Hressleiki einnig afar æskilegur. Taka skal fram að áheyrnarprufur eru nú þegar hafnar og ganga vonum framar. Samkeppnin er hörð.
V
20.9.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli