21.9.04

-Talkie Talkie hljóp af stað en Walkie Walkie varð eftir!-

Miðað við það framhjáhald er á þessu landi tíðkast þá væri nú heldur betur efni í að stofna einkarekna klúbba fyrir slíka iðkun. Þá myndu allir græða. Svo ég tali nú ekki um ef Ríkisstjórnin myndi bara til sín taka og henda smá aur í þetta.

Fólk er alltaf að leita í eitthvað nýtt, betra og meira... eða vill jafnvel halda öllum möguleikum opnum. Gott og vel. Svo er alltaf verið að tala um einhver "princip" . "Ég er ekki þessi týpa, ég geri ekki svona, ég lifi eftir þessu og þessu. 1.2.og 3. bara biblían mín..uuuuuuhhh, núúúee"....segðu mér annan!! Talkie Talkie! En hvar er Walkie Walkie? Ha? Hann er bara týndur... úti í móa. Hvarf eins og dögg fyrir sólu þegar virkilega reyndi á!

Traust er ekki gefið á silfurfati, það þarf heldur betur að vinna fyrir slíku.

Maður hefur svosum gert mistök sjálfurí gegnum tíðina á kornungaaldri þegar heimurinn var ekkert svo hnöttóttur og furðufataballið í Álftó var viðmið ársins. En í dag? Erum við ekki öll fullorðið fólk?

Þegar "minn maður" fer niður á annað kné skjálfandi af ákafa þá verður það sko ekki af því ég var ein af möguleikunum, heldur því að honum finnst ég EINI möguleikinn.

Já já, komið með "the corny stuff". Ég tek því bara opnum örmum. Komin með leið á þessu ansans veseni á fólki. Aldrei neitt nógu gott.

Það er bara gott í henni þessari.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****