22.9.04

-á næsta leiti-

Veddarinn ætlar að kíkja í kaffi til Slummfríðar í kveld. Langt síðan maður sá stelpuna en við kynntumst í 3.bekk Verzló. Svo verður kíkt á Margréti Eir á Næsta Bar hvar hún mun taka nokkur vel valin lög, ásamt einhverju nýju efni. Sú góða kona mun byrja upp úr 22.00 ef fólk vill hlusta á drottninguna.Krullinn verður með í för og er það ávallt hin mesta skemmtan.

Damien Rice er það svo heillin, á morgun og tilhlökkunin að fara með Veddarann. Krullinn verður jú aftur með í för.

Svo er ferðinni heitið á Akureyri með Bang Gang þar sem blaðamenn frá hinum góðu magazinum NME og Q munu sitja undir veitingum og njóta tónlistar bandsins. Ekki slæmt það. Svo stefnir allt í "brown skin" kveld hjá Rokkaranum á laugardagskveldinu en eigi er búið að staðfesta slíkt.

Nóg um að vera og Karen Carpenter er ennþá í loftinu. Spurning hvenær kellan ætlar að hypja sig úr haus mér.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****