26.9.04

-hólí mólí músarangi-

Margrét Eir var íðilfagur túlkandi á fimmtudagskveldinu með kontrabassa sér til aðstoðar. Bang Gang rokkaði upp Akureyri á föstudagskveldinu (myndir koma von bráðar) og ferðalagið var með eindæmum skrautlegt. Laugardagskveldið fór svo í matarboð hjá mæðgunum síhressu hvar við sátum og spjölluðum lengi vel. Spáð var í spil fyrir Veddarann og það lítur allt út fyrir spennandi tíma framundan hjá stelpunni enda svo sum nóg um að vera. Fjárráð mikil og marg-karlmenni var í spilunum svo að maður er að fara að græða á tá og fingri og deita fótboltalið. Það er aldrei að vita.

Svo var stelpan sótt í Reykjavíkina og er nú komin aftur í dekurhús Bissí Gumm hvar þvotturinn ilmar og heita vatnið á könnunni í viðbragðstöðu fyrir tedrykkju Veddarans.

Fyrir þá forvitnu, þá er Fröken Carpenter ennþá í haus og er búin að gera sig heimakomna þar.

Styttist svo í "heimför" til London og hlakka ég mikið til að byrja skólann, upptökur og almennt líf mitt í borginni góðu. Einnig er ég komin með Aldísar fráhvarfseinkenni. Það er verst á næturna þegar maður hefur engan til að leggja annan fótinn yfir. Já, það er nefnilega þannig að við systur getum ómögulega sofið í sitt hvoru herberginu ef við erum báðar í sama húsi. Gaman frá því að segja.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****