-myndir og menning-
Myndir! komnar í hús rakleiðis frá Haffa tempó eðalmanni úr Bang Gang ferð til Akureyrar síðustu helgi og gefur þær að líta hér!
Áheyrnarprufum er nú lokið fyrir píanóleikara og hefur afskaplega hæfur maður hlotið það starf.
Ég er í blússandi lagasmíðastuði og mun ég fara með afrakstur síðustu daga í hljóðver á morgun.
Veddarinn gerðist svo flippaður að skella sér á kvöldvöku í Hólaskógi með pabba hvar litli bróðir minn Sigfús var í fíkniefnafræðsluferð með 9.bekk, nú í gærkveldi. Á leiðinni var slammað með Rolling Stones, rætt um komandi haust og notið náttúrufegurðar Árnessýslu. Dásamlegt.
Helga Sigríður, mín ástkæra litla frænka er svo búin að panta mig á fimmtudaginn í ísbíltúr og hlakka ég mikið til. Um kveldið verður svo kíkt út eilítið með framúrskarandi félagsskap, á Hjálma, þá góðu hljómsveit .
Bla bla bla, lítið annað hægt að segja en lífið er fallegt..
...og já! - fröken Carpenter er ennþá í haus.
V
29.9.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli