-afstæðiskenning-
..hér sit ég klukkan hálffjegur að nóttu til og mér líður eins og ég hafi gert 100 hluti á fimm mínútum og er farin að hallast að því að móðir mín hafi rétt fyrir sér. "Maður á ekki að gera allt á síðustu stundu..." o.s.frv.
...en það er nú miklu meira fjör að vera með læti, er það ekki? Hvert lét ég þetta, hvar er húfan mín og hettan mín og svoleiðis Kardimommufílingur. Jú, það er miklu meira gaman að vera með drama á síðustu stundu því þá kemur aukið adrenalín og manni finnst maður hafi áorkað einhverju þegar maður sest í flugvélasætið. Í staðinn fyrir að pakka öllu eftir lit tveimur dögum áður, gera nesti fyrir flugferðina, passinn á vísum stað, búið að prenta út bókunarnúmerið (í lit) og allt húsið angar af AJAX. Booooooring.
Veddarinn: flíkur ofan í tösku (já, allar í einu), einhverjir skór (einn og einn af hinum ýmsu pörum),bókunarnúmerið skrifað á handarbakið, passinn er þar sem ég lét hann síðast (hvar?) og það eina sem ég virðist alltaf muna eftir og það klikkar aldrei, er tónlistin mín. Stemmningsdiskar Veddarans og eitthvað gól og ról. Og svo heyrist kallað úr eldhúsinu "Véééééééédís, ÞÚ ERT EKKI AÐ FARA Í DAG, ÞAÐ ER Á MORGUN!"
.....kæruleysi er dyggð. Hver kærir sig um kæru?
Ég vil biðja alla þá afsökunar er bjuggust við mér í kveðjukaffi í dag. Ég eyddi tímanum mjög skynsamlega í dag og hafði mikið að bardúsa. Þetta var m.a.s. afkastamesti dagurinn í mánuðinum, tel ég. Mjög mikilvægur dagur.
En örvæntið eigi. Veddarinn kemur að þremur vikum liðnum til að hrista aðeins upp í Airwaves hátíðinni. Já ég sagði hrista upp! Haldiði að maður hafi þetta ekki í sér. Tja.
Kíkti á Októberfest í gær hvar Krullinn sýndi listir sínar á hinum ýmsu sviðum. Og Kata einnig. Við skulum bara segja að þetta hafi verið gott kveld fyrir Spán. TROMMUSÓLÓ!
Þess má svo einnig geta að Veddarinn er byrjaður í fimleikum.
V
3.10.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli