-klukk?-
Það var víst verið að "klukka" mig hér um daginn og verð ég að viðurkenna að ég hafði ekki hugmynd um hvað það væri og hvurn fáráðlinginn maður ætti að gera út frá þess lags gjörningi í manns garð. Nú er ég hins vegar betur að mér í þessum efnum og því verð ég við þessari bón.
1. Ég er hamingjusöm að staðaldri.
2. Kækir hafa fylgt mér frá barnsaldri. Einu sinni var ég að syngja með Grensáskirkjukór og inn á milli blíðra brosa og nótnaskala geiflaði ég munninn og nefið svo allsvakalega að fremsta röðin í kirkjunni sat í hláturskasti. Pabbi tók þetta allt upp á myndband og þegar ég komst í tæri við spóluna þá henti ég henni og yppti svo öxlum, stolt af uppátækinu þegar mamma gerði dauðaleit að spólukvikindinu til að sýna í jólaboði.
3. Mín bestu lög og pælingar (að mínu mati) koma fram þegar ég vaska upp eða þríf á bak við klósettið. Ég róast mikið við slíkar aðgerðir eins og að elda, saxa niður hvítlauk o.s.frv..
4. Mér finnst bara allt í lagi að ganga í mislitum sokkum.
5. Ég veð eld og brennistein fyrir fólkið mitt.
V
10.10.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli