12.12.05

-frostrósir 2005-

Stór dagur í gær. Við eignuðumst fegurðardrottningu heims 2005 og við Frostrósir sungum inn jólin. Ég veit ekki hvar þetta endar með okkur Íslendinga. Fyrirtæki í útrás - snekkjukaup hjá þeim í líkingu við hverja aðra ferð í Bónus hjá manni sjálfum. Rithöfundar meira að segja í útrás! Íslensk tónlist,íslenskur fiskur,íslenskt kjet,íslensk fegurð,íslenskar gáfur.... allt er þetta að gera góða hluti. Og nú á að taka Frostrósir inn á evrópska vísu; "Frostroses of Iceland" ...eitthvað í þá áttina. Allt er orðið að Group einhverju og ég hef sterkan grun um að forn frægð okkar kæra Leifs sé ekki fjarri afkomendum þess góða manns. Blóðið talar.

Ó jæja, ætlaði nú ekki að taka þetta svo langt. Vildi bara lýsa yfir gleði minni á tónleikunum í Laugardalshöll í gær og þakka því góða fólki sem mætti galvaskt og stappaði í gólfin að þeim loknum. Mikil gæsahúð og tilfinningar eftir slíkan gjörning. Annir halda áfram meðfram þessu góða lífi og ég vonast til að ná í skottið á jólunum þar í milli. Verð nú að ná að henda í eitt piparkökudeig, annars fer ég að kalla sjálfa mig Skrögg og hreyta fúkyrðum í gesti og gangandi.

Að lokum á englamáli í anda Lennon:There´s nothing you can do that can´t be done! (",)

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****