8.12.05

-aðventan-

Æfingar á fullu fyrir tvenna Frostrósartónleika á laugardaginn og hef ég einnig tekið að mér BangGang á miðnætti sama kveld. Veit ekki hvar ég mun fá orkuna í það en ætla að taka það út með gleðinni. Fyrir þá sem velkjast í vafa um hvar á að nálgast miða á Frostrósirnar, þá er hægt að nálgast þá á www.2112.is. Örfáir miðar eftir af 2.700 sætum á tónleikana kl.16.00.

Ég tók mig til og skreytti aðeins í anda jólanna seint í gærkveldi þegar ég kom heim af æfingu. Það er rosalegur jólafiðringur í mér, þarf að halda honum aðeins lengur niðri svo ég geti notið þessa tíma þegar Halli losnar úr prófunum. Þá verður sko bakað, skreytt og horft á Grinch og Chevy Chase myndina 100 sinnum!!! ....verð víst að hinkra aðeins.

Bið ykkur vel að lifa!

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****