-yndið mitt-
Halli er á fullu í verkefnavinnu og prófin nálgast hjá honum í HÍ. Næsta vor er hann svo útskrifaður lögfræðingur strákurinn. Sko minn! Algjör hetja þessi maður. Í miðjum þessum klíðum finnur hann sér tíma til að kenna á píanó í Tónlistarskóla Árbæjar og spila með Vínyl og Jet Black Joe. Mátti til með að deila því með ykkur hér á alheimsnetinu hvað hann Þórhallur minn er duglegur, klár, fallegur og góður. Aldrei of upptekinn fyrir Védísi sína og á heiður skilinn fyrir allan þann skilning sem mér er sýndur í tónlistariðkun minni.
Ég biðst afsökunar ef væmni mín hér fer í viðkvæmar sálir en svona er þetta nú bara.
Að lokum er hér gamall ástaróður við dásamlegt lag sem allir þurfa að syngja til ástarinnar sinnar á góðum degi. Við megum ekki gleyma þeim sem standa okkur næst.
Þú ert yndið mitt yngsta og besta
þú ert ástarhnossið mitt nýtt
þú ert sólrún á suðurhæðum
þú ert sumarblómið mitt frítt
þú ert ljósið sem lifnaði síðast
þú ert löngunnar minnar hlín
þú ert allt sem ég áður þráði
þú ert ósk, þú ert óskin mín.
V
30.11.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli