-glory glory hallelujah!-
Montfréttir dagsins: Sigfús bróðir dúxaði með 9.5 í vetrarprófunum í 9.bekk á meðan hann svitnar í körfuboltanum á hverjum degi og æfir sig samviskusamlega á gítarinn. Gummi bróðir er svo að gera gloríur í MR í ræðuliðinu og kemur fólki til að kasta þvagi út frá hláturskippum í kroppi. Hann er einnig toppnámsmaður og góður drengur. Ég er svo stolt af strákunum mínum!
Ég held ég hafi sagt það áður hér á blogginu góða að lífið er yndislegt. Í ófá skipti hef ég tjáð mig um hamingjuna og að hún sé allsráðandi hjá mér. Svo les ég pistil um daginn þar sem greinarhöfundur fussar og sveiar yfir því hvað fólk sé að keppast við að vera hamingjusamt og þetta staðlaða "Hvað segirðu gott?" fái jafn staðlað svar: "Bara allt fínt!" og þá skipti engu hvort það sé sannleikurinn eða ei. Vissulega væri skoplegt að fá djöfulleg svör eins og "bara ömurlegt... ég nenni ekki að fara framúr á morgnanna hreinlega..." og því myndi fylgja einhver rulla um tilgang lífsins og að hann sé enginn. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að það sé í eðli okkar að vilja komast af, dusta af okkur allt ryk og leiðindi með því að brosa eilítið, kætast yfir smámunum og líta kaldhæðnum augum á annars hrikalegar aðstæður. Því einhvern veginn verðum við að lifa þetta af. Allir eiga sinn djöful að draga og sinn pott að brjóta. Gott og vel. Gamall skólafélagi þinn sem sat með þér í þýsku eitt ár og þú hefur ekki séð né heyrt í, í 6 ár má bara alveg fá snyrta fallega útgáfu af lífi þínu þegar þið rekist hvort á annað á Laugaveginum. Okkar nánustu verða svo þeirrar "gæfu" aðnjótandi að hlusta á kvartið og kveinið í okkur áður en við höldum út í menninguna þar sem allt er frábært og allt er fínt. Maður getur talað sjálfan sig inn á svo margt. Líka hamingjuna!
V
21.11.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli