-vetur á klaka-
Mig vantar fleiri klukkutíma í sólarhringinn.
Mun syngja á Hótel Valhöll á Þingvöllum núna næstu fimm helgar í röð og höfum ég og Valdimar Kristjónsson píanóleikari með meiru sett saman dásamlegan lagalista og útfært lögin af mikilli list að mínu mati. Allt í einu er varla vika í ljúfa tóna okkar Valda á Hótel Valhöll og við höfum æft töluvert fyrir þetta en það er meira en að segja það þegar lagalistinn skartar 54 lögum! Annars er frekar ljúft að vera hér heima, skrýtið en jafnframt gott. Við Jamie fundum ágætis ráð til að vinna saman í sitt hvoru landinu og munum við senda hljóð"file-a" á milli og vinna nokkur lög þannig til að byrja með. Svo þarf skvísan að komast út til London aftur bráðlega en þá komum við aftur að klukkustundaleysi.
Ég skellti í trölladeig í gærkveldi og bauð Rakel skutlu heim á Smáragötu þar sem við teygðum og toguðum út hin ýmsu listaverk í formi trölladeigs. Þetta endaði svo á Vegamótum þar sem sveittir pungar sveifluðust milli manna og frumskógarstemmning sveif yfir vötnum. Þá mundi ég af hverju ég fer svo lítið út hér á landi. Ég er miklu hlynntari útstáelsi af ærlega gefnu tilefni. Heimboðið heppnaðist þó svakalega vel og var gott að spjalla við góðan vin. Ætli ég sé ekki bara að læra þá list að nýta þessa fáu klukkutíma í sólarhringnum og líta ekki framhjá nauðsyn þess að bulla út í eitt og vera kjáni eina kvöldstund.
Maður þroskast þá eitthvað með aldrinum. Ótrúlegt en satt.
V
13.11.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli