-hamingjan-
Ég endurnærðist í dag við lestur "Málsins"(fylgiblað Morgunblaðsins). Þar aftast var lítið viðtal við Egil Ólafs tónlistarmann. Hann var brattur og hnitmiðaður og að lokum vildi hann segja þetta:
spurðu
án þess að vænta svars
endurtaktu
þannig lifirðu
gerðu mistök
þér verður fyrirgefið
hafðu ekki áhyggjur
af því að vera ekki þú sjálfur
þá gerirðu lítið annað
vittu
að í hjartanu
er land þitt
og vegabréf.
.... ég hripaði þetta niður á lítið blað og festi upp á vegg fyrir ofan kaffivélina. Gott að rifja upp sannleika þegar hellt er upp á!
Annars var bara farið fínt út að borða í kveld. Ég og yndið mitt höfðum lítillega gælt við að fara eitthvað út að borða, bæði búin að vinna mikið yfir daginn og ekki í stuði fyrir eldamennsku. Svo mættust augu okkar og í sömu andrá vissum við hvað við vildum. Á þannig stundum kemur hreinlega ekkert annað til greina. BSÍ. Við settumst inn og nutum félagsskapar skrautlegra bílstjóra. Það er eitthvað svo yfirdrifið heillandi og huggulegt að gera eitthvað slepjulegt með þeim sem maður elskar. Ó já.
V
3.11.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli