-it´s a mac´s world-
Þá er komið að því. Litlu PC stúdíó tölvunni minni verður kastað út í ólgandi sjó með öllu sínu pípi og argi og í staðinn kemur ný mac tölva! Mig klæjar í lófana af æsingi og get ekki beðið eftir að byrja að grúska í nýjum hugbúnaði og því sem tilheyrir. Ég hef loksins sett stefnuna á mína eigin plötu nr.2 enda nóg til af efni eftir fjögurra ára pásu ...og ætti hún að verða ansi hressandi... á mjög rólegan og yfirvegaðan hátt. Samstarfsverkefni halda þó áfram meðfram plötuvinnunni en ég get ekki logið því að mín hefur algjöran forgang. Loksins.
250 ára afmæli Mozart á næsta leyti... hér er einmitt mynd af Þolla Berg við Mozart styttu eina í Vínarborg nú síðasta sumar en þá fórum við einmitt á U2 tónleika í sömu borg í boði Veddarans. Svolítið óvænt fyrir afmæli unnustans og freeeekar mikið gaman!
Kvenmannsleysið á skerinu síðan Rakel og Bryndís hurfu af landi brott hefur ekki gert mig geðveika ennþá og Þórhallur stendur sig í stykkinu við að hafa ofan af fyrir mér. Hins vegar mun ég fá nóg af kvenleika úti í London hjá stóru systur núna eftir viku eða svo. Hlakka mikið til að njóta stórborgarinnar aftur og sinna tónlistargyðjunni í sjálfri mér.
Annars lífið gott, heimilið hlýtt og þvottur minn hreinn.
V
26.1.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli