19.1.06

-lífið-

"Ung stúlka, innan við tvítugt, lést í umferðarslysi sem varð á Hnífsdalsvegi á fimmta tímanum í dag" .... er nýjasta frétt á mbl.is. Hjarta mitt tók kipp og í sömu andrá fékk ég hugljómun. Eins svart og það hljómar að svona sorgarfrétt hafi gefið mér tilefni til uppörvunar.. þá fylltist ég lífsgleði og þakkaði mínum sæla að vera hér enn, spriklandi og gaulandi þetta í tíma og ótíma. Einnig þakka ég æðri máttarvöldum fyrir ástina og vináttuna sem umvefur mig. Fólkið sem gefur mér hana,leyfir mér að sýna hana á móti og ferska loftið sem hjálpar mér að draga andann. Þó er ég aðallega full samúðar með fjölskyldu þessarar stúlku og vona að svona harmleikur hafi einhvern æðri tilgang. Frekar erfitt að ímynda sér.

Í kjölfar lífsánægju minnar festi ég mér sæti í byrjun febrúar til Lundúnaborgar þar sem ég mun vinna verkefni með Jamie Maher góðvini mínum og músíkant í tvær vikur og dvelja hjá stóru systur í slotinu. Þar sem unnusti minn hlýtur mikinn skaða við þessa utanför mína, þá ætla ég að skokka út á leigu og taka uppörvandi mynd svona rétt til að kæta þessa elsku þegar hann kemur heim úr boltanum.

..og hvað haldið þið! Upplífgandi sannleikskorn að lokum: Gagnrýnin hugsun er lítils verð án hreinskilni og fordómaleysis.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****