-we´re after the same rainbows-
...rólegt föstudagskvöld í kotinu litla. Ég skellti í eina eplaböku í tilefni dagsins á morgun, móðir mín dásamlega á afmæli. Hún býður okkur á Brynjólfsmessu Gunnars Þórðarsonar í Reykjanesbæ á morgun. Við hlökkum mikið til.
Kveikt er á kertum og skuggarnir læðast meðfram veggjunum í takt við "moon river" sem er á fóninum í flutningi The Four Freshmen. Þetta lag í þeirra flutningi gefur mér gæsahúð niður í tær og lítið tár framkallast...gjörsamlega óboðið. Ég hef velt lífinu fyrir mér undanfarið. Veikindi og dauðsföll hafa verið áberandi í lífi mínu og annarra í kringum mig nú síðustu vikur. Bæði eldra fólk sem hafði átt góða ævi og lokið sínum erindum á Hótel Jörð og svo fólk í blóma lífsins sem átti svo mikið eftir... jafnvel að berja brúðkaup yngri sonar síns augum og veita sínum nánustu mikilvæga nærveru í þeirra sigrum og ósigrum í lífinu. Skil þetta ekki alveg.
Verður maður ekki að njóta hvers augnabliks út í ystu æsar? Ekki láta neinn eða nokkuð taka gleðina frá sér. Hvað veit maður um þetta líf eða það næsta. Þetta á að vera skemmtilegt á meðan það varir.
Ég gleðst yfir sigri litla brósa Gumma, í baráttunni um quaestor embættið í stjórn Nemendafélags MR... (eitt atkvæði á milli hans og næsta manns) fagna því að hann er að leggja sig fram, henda sér út í djúpu laugina.. lifa. Allt í þeim dúr. Litlu hlutirnir,stóru hlutirnir og allt þar á milli.
Ég er líka glöð að eiga góðan mann mér við hlið. Hann er yndislegur hann Þórhallur. Óviðjafnanlegur.
Ég er svo þakklát.
V
24.3.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli