-eydís til þjónustu reiðubúin-
Heill sé ykkur áhugamönnum og velunnurum Veddarans. 
Veddarinn mikli verður með auðmjúka sölu á níunda áratugs kvenfötum ásamt öðru tilfallandi skrani í Kolaportinu nú á morgun, laugardaginn 15.apríl. Þar inn á milli má þó líta karlkyns frakka og annað slíkt hressandi er kætt gæti dapurt augað. Allt er þetta heilt,fallegt og eigulegt. Einkar hentugt fyrir jaðartýpur sem vilja klippa þetta til og brúka sem framúrstefnuföt. Veddarinn áskilur sér þó rétt til að neita þeim um sölu sem ætla sér að vanvirða flíkina á einhvern eða annan hátt. Hugsanlegt er að undantekningar verði á þeirri reglu. Dragtir eru á 2000 kall, prútt leyfilegt og alls kyns skyrtur og pils eru á 500 eða 1000. Skór á 500.
Sé ykkur vonandi á laugardaginn í banastuði.
Eydís kveðja,
Veddarinn
14.4.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli