19.4.06

-grænn litur og aldísarafmæli-

Í dag nítjánda apríl á systir mín afmæli. Hún er dásamleg. Að beiðni hennar hef ég lofað því að gaspra ekki mikið um hana á blogginu mínu svo ég mun halda þessu í lágmarki. Hún fékk sér egg og beikon í morgunmat,átti ágætis sturtutörn og gekk bærilega að klæða sig í sokkabuxurnar. Til hamingju með afmælið Aldís!!!

Jæja, yfir í eitthvað áhugaverðara.... eins og hvaða græni litur ég er... he he.

You Are Teal Green

You are a one of a kind, original person. There's no one even close to being like you.
Expressive and creative, you have a knack for making the impossible possible.
While you are a bit offbeat, you don't scare people away with your quirks.
Your warm personality nicely counteracts and strange habits you may have.


Annars hef ég átt góða páska, át heilan helling eins og venja er, glensaði með góðum konum (Rokkarinn á landinu),gekk upp á Úlfarsfell...tvisvar!, seldi eydís dragtir í Kolaportinu... bara þetta venjulega (",) Halli er á fullu að læra fyrir síðustu prófin sem hann mun koma til með að taka í lagadeild!!! -svo að ég leita huggunar á netinu og tek próf um sjálfa mig síðla kvölds. Þá sjaldan.

Systur eru einkennileg fyrirbæri, þekkja mann inn og út og eiga samleið með manni út allt lífið,skyldulega séð ofan á góðan vinskap. Líður stundum eins og ég og Al séum tvíburar. Ég finn á mér hluti og verð skrýtin ef eitthvað amar að hennar megin í heiminum. Æ,þykir svo vænt um þennan bossa á henni.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****