-Reykjanesbær-
Komin heim frá Kanarí. Ferðin var einstaklega ljúf og góð í alla staði. Litur kominn á kropp og sólin náði að fikra sig inn í sálina, held ég barasta. Við tekur músík og þetta venjulega. Næ vonandi einni góðri vinnuferð til London núna á næstu vikum.
Annars eru kosningar að nálgast og gaman hefur verið að fylgjast með pabba gamla í baráttunni í Reykjanesbæ. Baráttan er kannski ekki hörð og niðurstöður kannanna sýna fram á framúrskarandi gengi.. ef allt fer vel. Pabbi,hins vegar,lætur ekki deigan síga,sefur ekki á verðinum né lætur sverðin falla, þó að spár og umfjöllun gætu hæglega gefið fólki tilefni til að skella upp bífunum og glotta. Ó nei, ekki minn maður. Ég dáist að honum fyrir allt sem hann hefur gefið sig í. Síðustu fjögur ár hafa verið mjög annasöm hjá honum og alls ekki auðveld, þrátt fyrir þá staðreynd að hann tekur öllu með stóískri ró. Með einstakri vinnusemi og hugmyndaflæði hefur núverandi bæjarstjórn með pabba í fararbroddi tekist að upphefja Reykjanesbæ á annað plan.
Eins og maður vill reyna að vera hlutlaus í svona máli þá er það ansi erfitt en staðreyndirnar tala sínu máli. Bærinn er heppinn að hafa fengið þennan gullmola til sín. Ekki aðeins tók hann sig til með börn og buru og gjörbreytti sínu lífi heldur yfirfærði hann sína mannúðlegu hugmyndafræði og velvild yfir á bæ sem hafði sterka sögu og margt í sér efnilegt sem þráði hreinlega að blómstra. Nú er hann auðvitað ekki einn að störfum,heldur er fjöldinn allur af dásamlegu og duglegu fólki í bæjarstjórn sem vinnur að því að gera bæinn að því sem hann er. Á öllum listum,hægri eða vinstri er flott fólk sem vill gera vel og ég virði það,hef kynnst því af eigin raun og met það mikils.
Ég á erfitt með að leyna rífandi stolti innra með mér því ég á föður sem ég treysti til að stjórna heilu bæjarfélagi því ég veit hvernig hann vinnur heima fyrir. Af hreinskilni,alúð og virðingu hef ég alist upp í faðmi foreldra minna og ég er lánsöm. Líður eins og ég hafi feitasta veganesti út í lífið sem nokkur getur státað sig af. En... þó svo að ég sé ekki hlutlaus, þá hef ég sterkt innsæi og ég veit að fólk kann að meta það sem hefur verið gert, er verið að gera og það sem koma skal.
X-D Í REYKJANESBÆ !
V
25.5.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli