28.5.06

-velgengni-





Vébergs rómans í Reykjanesbæ. Fengum að taka bikarinn hans pabba með okkur heim ;) Vildi bara deila hamingjunni með velunnurum Veddarans og að sjálfsögðu daðra við montið í sjálfri mér í leiðinni!

Ekki fór vel í herbúðum Neslistans en faðir Þollans er þar í sæti á Seltjarnarnesi. Það er bara vonandi að það gangi miklu betur næst. You win some, you lose some.

Rokkarinn var greinilega í góðu stuði í gærkveldi með sínum spúsa (sem á eftir að vera vígður af Veddaranum en það er annað mál...) og var ég með "missed call" frá kellu er ég vaknaði í morgun og hamingju sms. Þau voru eitthvað að teiga mjöð sem kenndur er við Vedda. Gott að allir eru að njóta lífsins á sama tíma.
Við gistum í Reykjanesbæ eftir að hafa vakað lengi yfir kosningatalningu og stuði. Mamma krúttið fékk algjört spennufall þegar fyrstu tölur voru kynntar ásamt undirritaðri. Maður er nú ýmsu vanur þegar það kemur að pólitík en það má segja að allt sem miður hefur farið áður sé að gefa okkur frekari styrk í dag. Eða eitthvað þannig... álíka klisjulegt og það er satt.

Þá segir maður bara eins og Freddie og félagar: We are the champions!

Til hamingju Reyknesingar. Það eru bjartir tímar framundan.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****