11.5.06

-vorvindar glaðir!-

Bryndís mín a.k.a. Krullinn er komin á Klakann til að taka eitt örlítið próf. Gleðin er allsráðandi. Ég sótti skutluna á flugvöllinn í gær og ætla svo að einoka hana eins og ég get en við fórum í sund í morgun og rifjuðum upp gamla takta. Hún fékk svo pásu frá mér til að líta í bækur en gleðin heldur áfram í Dallas hjá Anitunni í kveld þar sem konur munu gleðjast yfir heimkomu Krullans. Það er hinn besti samkomustaður enda er maður þarna undir fjalli í BBQ lykt og fuglatísti. Sögur fara svo af hanagali en það er algjör mýta eins og er. Á eftir að líta það berum augum sjálf.



Enginn er eyland segja þeir en ég og Bryndís erum jú tvær heimsálfur sem liggja að hvor annarri. Hjálpumst að í neyð og stundum millilandaviðskipti villt og galið. Oftast borgað með brosi og stuðningsöxl.

Velkomin heim lambið mitt!

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****