9.5.06

-sól-

Dásemdarveður undanfarið. Hitamistur yfir borginni og sprund og menn léttklæddari og kátari fyrir vikið. Kátína og hæfilegt kæruleysi hefur ríkt á litlu Smáragötunni. Þollinn kláraði prófin með glimrandi árangri og nú er aðeins ritgerðarsmíð eftir. Mín skellti sér bara í sund í dag og fékk lit á kroppinn. Eftir hálfan kílómeter sprett í Sundhöllinni skellti ég mér í sólbað í heitu pottunum og spjallaði við eldri hefðarmenn sem höfðu frá miklu að segja. Ég áttaði mig á því að það væri ekki svo galið að eldast og æskan væri ofmetið fyrirbæri. Að vita svo margt og geta miðlað þeirri visku áfram er stórkostleg hæfni. Gallarnir eru reyndar þeir að því eldri sem maður verður því meir styttist í móðuna miklu.. en það er örugglega bara fjör að geta gert gloríur þarna uppi rétt eins og hér á jörðu niðri.

Anita drottning bauð okkur í grill í kveld og maður heldur væntanlega áfram að sleikja sólina í sveitinni hjá henni frameftir kveldi.

Svona á lífið að vera: Íslenskt sumar

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****