11.6.06

-sæluhús-

Hef varið dögum mínum í naflaskoðun í Reykjanesbæ á meðan foreldrar njóta sín í Danmörku. Ég tók að mér hlutverk húsmóður og sýningastjóra en Heiðargilið er jú til sölu þar sem búið er að byggja eitt stykki draumahöll í Innri Njarðvík. Einnig fylgdi ég bróður mínum Sigfúsi Jóhanni til útskriftar úr 10.bekk í Heiðarskóla og var það mikilvæg tímamótastund nú síðasta föstudag. Karlinn bara síðastur í röðinni af systkinunum þessi elska og því enginn fulltrúi Árnabarna í grunnskóla lengur. Hann kláraði þetta með stæl. Vann til verðlauna og dúxaði í ensku svo fátt eitt sé nefnt. Best þótti mér þó viðurkenningin sem hann fékk fyrir "að sýna ávallt jákvæðni, áhuga og prúðmennsku".

Við skutumst svo heim til að reikna út meðaleinkunn og fagna þessum áfanga. 9.2 á reiknivélinni eftir stimplið og þá var bara að taka upp tólið og hringja í móður og föður í Danaveldi. Mútta litla svaraði ægilega spennt og þegar ég hafði sagt henni frá herlegheitunum varð grafarþögn á hinni línunni. "Mamma?"
Hún var farin að snökta.
"Já, þetta er sko drengurinn minn.."

Það lekur alltaf af manni stoltið yfir sínum nánustu, því er ekki að neita. Í svo miklum mæli að óeðlilegt gæti talist og vafalaust fá einhverjir æluna yfir væmninni í kellu. En þetta er jú lífið og það sem snýr heiminum mínum og verður maður að fá að eiga það afskiptalaust.

Það er svo mikilvægt að vera þakklátur og nýta sér þær gáfur sem maður hefur. Á þessum útskriftardegi fengu ekki allir verðlaun enda ekki gefin verðlaun fyrir leiklistarhæfileika,kímni eða almennt það að vera góð manneskja t.d.. Á því hamraði skólastjórinn með rentu.

Það eru ekki til verðlaun fyrir allt sem við erum. Það er víst undir okkur komið að þekkja styrkleika okkar og gera sem mest úr þeim. Að gera það er skylda sem ber umbunina í sjálfu sér.

Rakel, Krulli og Aldís mín - Þetta er tileinkað ykkur, sterku álfarnir mínir! :)

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****