19.6.06

-aldrei fór eg norður-

Billie Holiday á fóninum og sólin smýgur inn á milli skýjanna eftir rigningatörnina sem verið hefur undanfarið. Útsýnið út um gluggann hér á Smáragötu er jafnan dásamlegt. Gróinn garðurinn skartar hinum ýmsu blómum og rótgrónum stórum trjám. Lítið viðarborð með þremur stólum er staðsett upp við eitt trjánna og nýslegið grasið er farið að óska sér sólarglætu. Við tölum oft um málverkið stóra í stofunni, sem er jú glugginn. Við erum með síbreytilegt málverk og maður horfir á árstíðirnar breytast með bros á vör. Aldrei gæti það talist leiðinlegt að spila á píanóið inni í hljóðverinu góða og horfa út á dýrðina.

Ég græt ekki sólarleysið enn, enda er ferð minni heitið til Akureyrar í fyrramálið með fyrsta flugi og þar er spáin nokkuð góð. Þar mun ég vera með söngnámskeið með hinum spræku og fögru Regínu Ósk og Heru Björk. Fyrsta skiptið mitt og spennan eftir því. Tek að mér fjóra hópa á dag fram til 28.júní og ætti það að vera ágætis törn. Fæ reyndar helgarfrí til að syngja í brúðkaupi Lúcindu æskuvinkonu en hún mun festa böndin á Selfossi.

Svo er það London heillin! Get ekki beðið!!! Ætla að vera þar fyrstu tvær vikurnar í júlí og klára megnið af lögunum fyrir plötuna OG halda upp á 24.afmælisárið. Vinir og venslamenn hér og þar, ekki örvænta ef þið náið ekki í mig næsta mánuðinn. Það er smá törn framundan hjá Vedda. Blóm afþökkuð en afmæliskort og gjafir má skilja eftir við útidyrahurðina. Máske fæst Veddi til að halda veislu þegar heim er komið en það fer algjörlega eftir eftirspurn. Rokkarinn er væntanlegur á Klakann og ég vonast nú til að geta aðeins hitt á kellu áður en ég held út á miðin.

Ég er ástfangin!

Lag dagsins; The very thought of you með Billie Holiday... unun!

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****