1.7.06

-que sera sera-

Ferðalangurinn Veddi er mættur á svæðið. Töskur tilbúnar og allt mitt hafurtask situr við ganginn. Allt mun þetta bíða úti í bíl á meðan ég skýst inn í Fríkirkjuna og syng eitt brúðkaup. Þollinn mun svo hafa skrjóðinn í gangi og skutla mér út á flugvöll að því loknu. Þetta verður skrautlegt!

Akureyri var dásamleg, litlar dúllur knúsuðu mig bak og fyrir og sungu sínum blíðu röddum svo að litla hjarta Vedda var brætt frem og tilbage! Mikill árangur þar á bæ.

Í gær var svo tekin þriftörn í nýja húsinu í Innri Njarðvík og Veddi lét sig ekki vanta þar sem fjölskyldan stendur í ströngu við að flytja...

En nú er það bara Lundúnir og músíkin. Það hlakkar í kellu en hnútur gerir vart við sig í maga...

Afmælishelginni minni verður svo eytt í Mónakó með Aldísi minni en hún og Ralph hafa boðið mér til sín í tveggja daga stuð. Ætli það verði ekki kærkomin hvíld frá stöðugum upptökum. Ég er fordekruð!

Bið velunnara Veddarans vel að lifa í millitíðinni og gef ykkur það heillaráð að brosa og hljæja mikið ykkur til betri heilsu og kátínu!

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****