14.7.06

-góðir hlutir gerast hægt-

Komin heim frá Lundúnum, upptökur gengu glimrandi og ég er í skýjunum yfir afrakstrinum. Mónakó var líka dásamleg þar sem ég átti tvo sólríka daga í faðmi minnar yndislegu systur og hélt upp á árin mín 24 þann 8.júlí.

Þollinn átti afmæli í fyrradag og ég náði lendingu um miðjan dag til að fagna með yndinu mínu. 29 ára gamall gutti en mikið asskoti lítur hann vel út strákurinn. Ár í stóra tuginn!!!Hann hafði sitthvað óvænt planað fyrir afmælisgjöf Vedda svo að þetta var tvöfalt afmæli í sjálfu sér. Gott að vera komin heim og það er mikið framundan.

Ljósalagið 2006 er í fullum gangi og ég var svo lánsöm að lagið mitt sem ég sendi inn komst í tíu laga úrslit af 90 lögum. Regína Ósk syngur það og við þurfum að ná fínni hljóðversupptöku áður en ég held aftur út á miðin til Lundúna. Lögin verða kynnt á Rás 2 og líka á tonlist.is í ágúst og kosning mun fara fram á netinu. Úrslit verða svo kynnt í Kastljósinu. Ég hvet alla til að hafa eyrun opin fyrir keppninni og þið verðið eflaust heilluð af henni Regínu. Lag og texti eftir Vedda og ég hef á tilfinningunni að þetta verði næsti brúðkaupssmellur :) Lagið heitir "Ástfangin".

Æfingar framundan fyrir "Silver" en það er amerísk-íslenskur kabaret með mér og Seth Sharp,á Hótel Borg í Gyllta sal 20. og 21.júlí og er að sjálfsögðu tilvalið að velunnarar Vedda mæti galvaskir og geri sér glaðan dag.

Þen raddböndin nú á laugardaginn í brúðkaupum og ætla að knúsa fólkið mitt vel og vandlega um helgina.

Fyrsti dagurinn aftur á Klakanum og eftir að hafa setið eða staðið sveitt fyrir framan hljóðnema og græjur í 30 gráðu hita inni í stórborg, fagna ég regninu,melankólíunni og dögginni undir miðnætursól.

Sólskin kemur alltaf fast á hæla myrkursins.

Læt fylgja með nokkrar gleðimyndir frá Lundúna og Mónakóferð.....







V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****