-silver-
Velunnurum Veddarans er stefnt á Hótel Borg í kvöld eða annað kvöld en þar mun ég þenja loftpípurnar með hinum ótrúlega bandaríska söngvara Seth Sharp (www.myspace.com/sethrs) sem gerði m.a. Prince afar góð skil í "Prince tribute" show-inu sem hann hefur haldið tvisvar hér á landi.
Þetta er samblanda íslenskra og amerískra laga en í þeim er margt svipað þótt ótrúlegt sé. Líf svartraá árum áður og jafnvel ennþá í Ameríku þykir Seth minna um margt á sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og lýsir það sér stundum í tregablöndnum lögum okkar.
Dyrnar opna 20.00 og sýningin hefst 21.00 í Gyllta Sal á Borginni. Villa er í Fréttablaðinu í dag en þar er talað um veitingastaðinn Silfur. Þetta er tvennt ólíkt svo að ekki láta blekkjast. Gyllti Salurinn er það heillin, á Hótel Borg. Miðaverð er 2000 kr. við innganginn.
Aðeins tvær sýningar því kellan þarf að komast fljótt út aftur til Lundúna.
Gerið ykkur glaðan dag í kveld eða annað kveld og takið elskuna með ykkur.
Hlakka til að syngja ofan í ykkur!
V
20.7.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli