28.7.06

-cumpleanos feliz!-

Hin fagra og síkáta Bryndís á afmæli í dag. Við hér á Veddaranum óskum henni innilega til hammó með ammó. Ég sló á þráðinn til hennar í morgun þar sem hún dvelur með spúsa sínum í Marbeilla og planið er strönd og meððí sem er afar viðeigandi á svo mikilvægum degi. Það kemur margt upp í hugann þegar ég hugsa til Krullans míns; "muy fuerte una peligrosa",kaffi latté, krullur,blikandi skilningsrík augu, hlátur, lítill dans á stofugólfi, ljúft bros,kókómjólk og kúlupúkar,tátiljur,regnboginn og allt þetta góða sem einkennir ævarandi vináttu. Til hamingju með daginn elsku Biddi!



Showið á Borginni gekk afar vel og daginn eftir var ég farin til Lundúna í meiri upptökur. Það er varla stund milli stríða en ég kom seint á miðvikudagskvöld og náði góðum upptökum með Regínu Ósk en eins og fyrr hefur komið fram þá syngur hún lagið "Ástfangin" sem verður í LJósalagskeppninni 2006, lag og texti í boði Vedda.

Í dag tek ég svo stefnuna á Flórída en minn dásamlegi faðir verður fimmtugur á sunnudaginn og hvar er betra að fagna nema með fjölskyldu og vinum í stóru strandarpartýi í suðri! Ef ég klikka á bloggfærslunum þá geta velunnarar Vedda fundið hann í Universal Studios að rífa í sig sterabætt kjet með Big Gulp í annarri.!

Lifið heil og sendið Krullanum mínum afmæliskveðjur!

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****