-LJósalagið 2006-
Kom í morgun frá hinni sólríku Flórída og er svona að dúlla mér við að taka upp úr töskum og endurraða á heimilinu en ég tapaði mér aðeins í innkaupunum. Þórhallur hinn dásamlegi kom síðustu vikuna og var með okkur fjölskyldunni. Yndislegur tími! Myndir koma innan skamms.
Nú er svo komið að velja á Ljósalagið 2006 og kosningin byrjar 21. og er fram til 25. á netinu. Ég samdi lagið Ástfangin, fékk Regínu Ósk til að syngja það og það komst inn í topp tíu lögin. Ég vil biðja velunnara Veddarans um að skella sér inn á www.ruv.is/poppland og fara þar inn á bláa kassann sem segir Ljósanótt í Reykjanesbæ. Það mun leiða ykkur inn á LJósanætur síðuna þar sem þið getið kosið eftir að hafa hlýtt á lagið. Það er til mikils að vinna fyrir höfund og þar sem engin dómnefnd er, aðeins netfangakosning.. þá væri ég afar þakklát ef þið mynduð sýna mér stuðning, gefið að ykkur finnist það besta lagið :)
Þið sjáið nafnið mitt Védís Hervör Árnadóttir og lagið "Ástfangin" við hliðina á og kjósið!
WWW.RUV.IS/POPPLAND
Lifið, njótið, brosið!
V
20.8.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli