-óður til ömmu og afa-
Þetta yndislega fólk verð ég að skrifa um.
Nafna mín og amma, Hervör Guðjóns vildi fyrst ekki líta við Guðmundi Knúti Egilssyni á dansleik einum hér á fyrri öld. Hún sagði bara "puff" og kallaði hann "sveitamann". Hann gafst ekki upp karlinn og að lokum náði hann skvísunni sem hann talar enn um sem "óaðfinnanlega". 5 börnum, 15 barnabörnum og einu gullbrúðkaupi síðar voru þau mætt til Flórída með sinn eiginn bílaleigubíl. Félagsmiðstöðin sem fyrirfinnst heima hjá þeim í Hvassaleitinu var skyndilega komin til Flórída. Það var bara ræktin á morgnanna, búðirnar,ströndin og laugin á daginn og partý á kveldin. Ég hef sjaldan verið stoltari af þeim, en þegar ég leit þau hjónin á hlaupabretti, saman tvö búin að finna sér pláss hlið við hlið. Lyftingar voru svo teknar að því loknu.75 og 78 ára gömul. Þess má einnig geta að amma Hervör er ansi virk á e-mailinu og ósjaldan fær maður sætar litlar kveðjur frá henni á netfangið eða sms til London þegar ég er þar stödd.
Þrátt fyrir óbilandi hrifningu á karlinum þá kallar hún afa ennþá sveitamann þegar best lætur og segir bara "puff"...
Ég tek ofan fyrir þeim. Þau eru sannkallaðar fyrirmyndir.
26.8.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli