-haust-
Sumarið líður alltaf of fljótt. Bjartur himinn og ilmurinn af nýslegnu grasi hverfur inn í ágústmánuð og skyndilega koma allir fölu litirnir í ljós. Það er eins og árstíðirnar séu fjórir litlir krakkar sem haldast í hendur,öll klædd mismunandi litum. Sumarið auðvitað í þeim litríkustu og veturinn í þeim svölustu,snævi þakið og hvítt. Haustið er svo hálf fátæklegt að líta á sinn sjarmerandi hátt,einkonar mosagrænn litur og vorið er fullt af möguleikum, hvorki of litríkt né litlaust,meira svona límugrænt.
Mér hefur alltaf þótt árstíðirnar heillandi eins erfitt og það getur verið á Ísalandinu besta. Breytingar eru alltaf af hinu góða og nýjir og ferskir hlutir koma með nýrri árstíð hversu köld eða hlý hún kann að vera. Árstíðirnar minna mig á að maður breytist, þroskast og kemst yfir það sem stundum virðist óyfirstíganlegt. Því eftir sumarið kemur haustið,vetur og vor. Svo aftur sumar með nýjum áherslum,nýjum áskorunum og hindrunum til að takast á við. Ég gjörsamlega elska þá staðreynd að þótt við öll breytumst og lærum nýja hluti, þá kemur alltaf sumarið sem við biðum eftir eða haustið sem við hræddumst. Allt þetta óumflýjanlega eins og fæðing eða dauði. Þetta eru stórbrotnir hlutir sem fela í sér svo gífurlega mikinn lærdóm og gefa manni allt þetta góða og slæma í reynslubankann. Brýtur upp hversdagsleikann og minnir mann á að dagurinn í dag kemur bara einu sinni.
Allt er breytingum háð, er það ekki?
Hlakka til haustins og að sjá öll laufin endanlega falla af trjánum. Því þau koma á endanum alltaf aftur í einhverri annarri mynd.
V
28.8.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli