-heartbeats-
Ég á ekki til lýsingarorð yfir lífsgleði mína einmitt núna. Reyndar finnst mér ég alltaf vera með "lífið er fallegt" óð hér á blogginu og ég biðst forláts til þeirra sem sitja með ælu í koki yfir klisjunum hér en mikið fjandi er lífið bara faaaaaallegt!!!
Fyrst vil ég byrja á að þakka velunnurum Vedda fyrir stuðninginn í netkosningunni góðu í Ljósalaginu. Allt fór þetta vel og sigur varð ofan á! Ég trúi þessu vart ennþá og hélt nú að jaxlarnir, Jóhann G. eða Magnús Þór Sigmunds myndu taka þetta með litla putta. Heiðurinn er gífurlegur og þakkirnar fara að hluta til yfir til ykkar sem kusu lagið en einnig til Regínu sem flytur þetta afbragðsvel. Þess má geta að lagið kemur út á plötu hennar fyrir jólin. Og megi það lengi lifa!
Og til ykkar sem eru með samsæriskenningar um bæjarstjórann og litlu dóttur hans sem vann Ljósalagið: Þið getið smjattað á einhverju öðru núna, það eru komnar tvær vikur :)
Yfir í aðra sálma. Ég mun fljúga til Lundúna nú í vikunni og dvelja þar í fimm vikur og leggja lokahendur á vinnsluferli þeirra laga sem þarf að velja úr fyrir plötuna mína. Verður þetta mikil törn en þar sem ég er hress lítill kettlingur þá mun ég fljúga Þollann minn yfir og fá hann í smávegis spilamennsku. Hann, sem hefur unnið hörðum höndum að lokaritgerð sinni, mun þá ná smá afslöppun og um leið leyfa mér að njóta hæfileika sinna. Þá tekur Madrid við en þar bíða Bryndís og Fran eftir okkur með opinn faðminn. Ég sýp kveljur hreinlega yfir söknuði til minnar dásamlegu Bryndísar, sem í frístundum er kölluð Krulli. Við ætlum að ljúka ferð okkar í Barcelona sem hefur lengi verið á listanum hjá mér, áður en við höldum aftur til Lundúna. Ekki lýkur glensinu þar, en við stöldrum stutt við í Lundúnum og höldum aftur á vit ævintýranna en Ralph hennar Aldísar á íbúð í Mónakó og þar ætlum við að vera lens og fara á ströndina. Ég hef einsett mér að klára texta fyrir lög sem hafa verið að plaga mig í Mónakó svo að allt eru þetta vinnuferðir sem ber að taka alvarlega!!!
Gaman er svo frá því að segja að Véberg er tveggja ára á morgun. Tíminn flýgur þegar maður skemmtir sér. Þann 11.september, þegar heimurinn minntist hroðalegra atburða, fann ég sálufélaga minn, besta vin og glensara með meiru, Þórhall Bergmann. Ég ann þér Þolli Berg, virði og dái! Við ætlum að fagna þessum áfanga með stæl á morgun og fara á Þjóðminjasafnið. Blóm og kransaskeytingar vel þegnar en annars má fólk líka kíkja við í kaffi, ræða landspólitíkina og berja augum tígrismynstraða stóla sem Veddi keypti sér á Flórída.
Til frekari útlistunar á lífi mínu má nefna að ég ætla að bjóða Þolla upp í dans á þessum fagra sunnudegi. Við blöstum stundum "Heartbeats" með The Knife og stígum létt spor. "Heartbeats" er svona lag sem má helst aldrei enda, svo gott er það!
Par sem dansar saman, "helst" saman.
V
10.9.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli