-lon og don og bryllup Rokkarans!-
Detti mér allar dauðar! Ef maður er einhvern tíma lens þá er það núna. Rakel mín er TRÚLOFUÐ! Brúðkaup næsta sumar, Veddarinn hefur verið skipaður yfirgæsari og mun gaula í athöfninni. Nú þarf mín að spýta í lófa og rifja upp gamla takta. Hef dottið allrækilega úr glensibransanum síðustu mánuði en ég mun standa mig í gæsuninni enda ekki hvaða Rakel sem er að fara að gifta sig! Við hér á Veddaranum óskum þeim tilvonandi til hamingju með ráðahaginn og vonumst til að sjá smettið á þeim við fyrsta tækifæri. Hér með er Rokkaranum stefnt til London ef hún vill skoða brúðarslör hér! en ekki í Köben.
Er að vinna að næstu plötu minni í Lundúnaborg. Búin með viku og kem heim eftir fjórar slíkar. Allt gengur framar vonum. Ég kíki reglulega á netpóst svo að ef fólk nær ekki í mig í síma þá er pósturinn málið. Er með sama London númer og hefur verið síðasta ár.
Lifið heil!
V
18.9.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli