3.11.06

-Twilight time-

Ég vil skrifa hér örlítla línu til heiðurs afa mínum Sigfúsi J. Johnsen en hann lést í gærdag 2.nóvember síðdegis. Hann var umvafinn okkur stórfjölskyldunni þegar hann dró síðasta andann og er það mikil blessun í sjálfu sér.
Sigfús J. Johnsen var hörkutól og mikill glensari. Ég á dýrmætar minningar sem ég geymi í hjartanu og ég veit hann vakir yfir okkur öllum. Síðustu orð hans er hann fékk tímabundna rænu og leit á okkur öll snöktandi við rúmið voru; "I love you" en það var honum líkt, að sletta fram enskum orðum að hætti Presley nokkurs. Aðeins að hugga liðið, skildi ekkert í okkur enda bara sáttur að fá þjáningum sínum linað. Töffari og sannkallaður aðalsmaður.
Ég er svo stolt af því að vera afastelpan hans. Blessuð sé minning hans og allt það sem hann skildi eftir sig hér á jörðu niðri. Lífið heldur áfram og það er í rauninni betra núna þegar hann hefur fengið frið.

Lífið er gafstu mér, tifar enn. Gefur mér von :)

Minningarnar streyma með tilheyrandi tárum en þetta er merkilegt ferli, að kveðja ástvin. Ég verð þakklátari og þakklátari með hverju árinu sem líður. Vona að allir sem þetta lesi þakki fyrir lífið og tilveruna og noti krafta sína í eitthvað jákvætt og gott. Niðurrif og hatur eru hvimleiður andskoti að eiga við. Léttið ykkur lífið og brosið framan í heiminn. Ég meina það!

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****