12.11.06

-eilífðin?-
Ég sé ljóst hár og blá augu á litlu sakleysislegu andliti í minningargrein Moggans. Tólf ára drengur borinn til grafar. Hverfult líf . Hvaða sanngirni er í því? Afi minn ástkær var borinn til grafar á fimmtudaginn síðasta, 76 ára að aldri,sem er aðeins ásættanlegri aldur til að kveðja en alltof ungt engu að síður. Dauðinn er yfir og allt um kring. Ræðst á allan aldur og alla menn.
Stundum hugsa ég til hjarta míns sem líffæris, ekki sem tilfinningalegrar átyllu og gott orð í klisjulegt lag. Heldur sem blóðdælu sem starfar innra með mér og ég þarf að hugsa vel um. Ég hræðist það að hjartað muni bregðast mér einn daginn, stífna upp og segja hingað og ekki lengra Veddi minn, þetta er komið gott. Prestarnir tala svo fallega um lífið og hátíðlega um dauðann, hann er hluti af lífinu og allt það en ég skil ekkert í þessu fyrirbæri. Ég vil nefnilega lifa sem lengst og óska öllum þess sama. Helst vildi ég lifa að eilífu. Þegar þetta margspilaða níunda áratugs lag kemur í í útvarpinu "Who wants to live foreveeeerr.." þá hugsa ég alltaf "hmmm..... ég!"
Hvað væri að því ef við myndum öll dúsa hér í notalegri stemmningu saman? Burtséð frá því að offjölgun fólks á jörðu gæti orðið vandamál, lýtalæknar hefðu ansi lítið að gera og ég myndi fljótt gleyma nöfnum barnabarnabarna minna.. þá finnst mér það svolítið lækker hugmynd.
Öskrað úr lungum sér "við lifum endalaust" inni í brennandi húsi. Hlær framan í dauðann, gefur honum fingurinn og býður honum jafnvel upp í dans.
Þegar maður þekkir ekkert annað en lífið sem maður er vanur að lifa, fólkið sem hefur alltaf umvafið mann og Sigguna í sjoppunni á horninu þá er ansi sárt að þurfa að labba á vegg einn daginn og sjá á eftir ástvini. Ég kveið alltaf fyrir þessu en hafði ekki hugmynd við hverju var að búast. Ég nýt þeirra forréttinda að eiga foreldra, ömmu og afa, systkini,vini og unnusta. Það er ó svo margt sem ég þarf að læra um lífið. Ég var að uppgötva þetta í dag.
V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****