-Silfur Vedda!!!!-
Ef þið búið í Reykjanesbæ eða eigið leið framhjá þá erum ég og Seth Sharp með tónleika í Bíósal Duushúsa í kvöld kl.20.00. Þeir bera nafnið Silver og er í anda "Aint Misbehavin" og "Smokey Joe´s Cafe". Silver samanstendur af bæði íslenskum og amerískum dægur- og þjóðlagaperlum sem tvinnast saman og segja sögu af von, ást, gamani og forvitni. Í Silver er m.a. að finna fallega samblöndu af Sofðu unga ástin mín og Summertime ásamt "fönkí" útgáfu af Fat Waller laginu Viper´s Drag/Reefer song í bland við "Í Bláum skugga" sem Stuðmenn okkar Íslendinga eiga heiðurinn af.
Fyrsta sýningin er nú á laugardaginn í Bíósal Duushúsa kl.20.00. Miðaverð er 1.500 kr. við innganginn og miðasala opnar klukkustund fyrir tónleika.
Næstu helgi er það svo Akureyri á Græna Hattinum.
Fyrir höfuðborgarálfana mæli ég með síðustu hátíðartónleikum okkar í Salnum Kópavogi,laugardaginn 16.des. Við bætum þá nokkrum vel völdum jólalögum við lagalistann. Það verður mjög huggulegt og í takt við jólahátíðina. Byrjað er að selja inn á þá tónleika á www.salurinn.is. Fyrstir koma fyrstir fá :)
Bestu kveðjur,
V
18.11.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli