23.11.06

-vetur-

Kuldaboli hefur algörlega náð tökum á mér og ég er öll skorpnuð og skrælnuð á fingrum og í framan og maður er sumsé ansi huggulegur svona þegar nær dregur jólum. Gott er þá að tengdó skuli vera húðsjúkdómalæknir.
Ég hef tekið að mér það virðulega hlutverk að passa Zorro (persneska kisu Rakelar) á meðan fjölskylda hennar heimsækir hana í Danaveldi. Ég er því á leið út úr húsi að sækja herramanninn öll uppveðruð út af þessu nýja hlutverki. Þollinn verður svo að sjá um hann einn á laugardeginum en þá höldum ég og Seth til Akureyrar með litlu hljómsveitina okkar og teljum í á Græna Hattinum. Ætti að verða ansi athyglivert. Ef þið þekkið einhverja á Akureyri þá megið þið vinsamlegast senda þá til okkar. Græni Hatturinn, Akureyri, laugardaginn 25.desember kl.21.00.
Gaman er frá því að segja að píanóleikarinn okkar er frá Ástralíu og starfar sem "animator" hjá Latabæ núna næstu þrjá mánuðina. Hann ákvað að gera sér glaðan dag og æfa upp stíft prógram með okkur sem krefst mikillar þrautseigju. Sérstaklega þegar helmingur laganna er íslensk þjóð- dægurlög.
Æ, þetta líf er svo lækkert.
V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****