-gömlu góðu-
Skósmiðurinn í Kringlunni horfði á mig og tjáði mér með sárum rómi að þetta væri "búið". "Búið"? Spurði ég skjálfandi. "Þú meinar þá að.....". "Já. Þú gengur ekkert í þessum meir." Þollinn horfði á mig vorkunnaraugum "æ æ... þú færð þér bara nýja." Nýja já. Ég hélt nú ekki. Það væri eins og að halda framhjá. Ekki yrði Þollinn nú hrifinn af þannig meðhöndlun, hvað þá dýrindis stígvélin mín sem hafa gengið fegurstu borgir Evrópu og hafa eitthvað óskiljanlegt tilfinningalegt gildi fyrir mig.
Þeir voru keyptir þann 28.júlí 2005 á afmælisdegi Krullans míns. Við vorum staddar í Glamúr fatabúðinni á Skólavörðustíg með slefandi skolt og blikandi augu yfir fataúrvalinu og á hillunni stóðu þessi dýrðlegu stígvél. Enginn vandræðalegur súperhæll, bara frekar flatbotna og kósí. Minn tebolli eins og maður segir. Krulli keypti sér doppóttan kjól fyrir brúðkaup á Spáni sem var á næsta leyti og við höfðum átt dýrindis dag á Kaffi Tár og heilastormað yfir framtíðinni og rifjað upp gamla góða daga. Við Krulli erum ekkert alltaf að leyfa okkur fatakaup eða spanderingar á kaffihúsum og því var þetta hátíðisdagur, enda afmælisdagur.


Stígvélin góðu hafa spásserað um í Lundúnaborg að sjálfsögðu og mestallt Bretlandið, Brussel - Leuven og Antwerpen í Belgíu, Vínarborg í Austurríki,Mónakó,Madrid á Spáni,Tokyo - Chiryu - Nagoya í Japan og Sarasota - Orlando á Flórída. Einnig hafa þeir spásserað um allt Ísland.
Ég fæ mig ekki til að henda þeim og ég hef ákveðið að gera antíkmun úr þeim. Plasta þá eða einhvurn fj.... svo minning þeirra lifi um ókomna tíð.
Það skal enginn skóviðgerðarmaður segja mér að eitthvað sé "búið".
V
28.11.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli