-því við eigum samleið í tíma og rúmi-
Sigga Beinteins og Grétar í sjónvarpsþætti Jóns Ólafs að taka eitt gamalt og gott. Þau eru engu búin að gleyma. Yndislegt lag. Nostalgían hellist yfir mig. Maður var bara lítil skotta í appelsínugulum samfestingi með hliðartagl þegar þetta lag vann Landslag Bylgjunnar á sínum tíma.
Frábær þessi þáttur Jóns góða. Ég sit alveg límd við imbann þegar þátturinn byrjar.
Og viti menn. Nú situr "idolið" mitt í þættinum hjá honum, Helena Eyjólfs. Hún er yndið uppmálað. Mæli með safndiskinum hennar, Hvítu Mávar. Hún er með rödd sem bræðir.
Jæja, gott að sitja og blogga sjónvarpsskýringar....
Minni alla á tónleikana okkar Seth Sharp í Salnum,Kópavogi þann 16.desember. Þetta er á laugardegi og höfum við fest okkur einn "heitasta stað bæjarins" (sagt með Hemma Gunn ívafi) í eftirpartý en hann heitir DECO og er við hliðina á Cafe París í miðbænum. Þeir sem sýna tónleikamiðana sína við innganginn fá sterkan mjöð ef þeir það kjósa ásamt huggulegri stemmningu með góðu fólki. Endilega að næla sér í miða sem fyrst á þessari vefslóð: http://www.salurinn.is/event_area.asp?event_id=3936 eða í síma 5700-400.
V
2.12.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Menningarhornið
- Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
- Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
- Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
- Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
- Kommúnan, Vesturport *****

0 ...og gammar geysa!:
Skrifa ummæli