4.12.06

-Amerísk/íslensku Dívurnar!!!-



Fyrir þá sem hafa nú þegar komið til Evrópu og ætla ekki að taka í þrútnar buddurnar fyrir Evrópsku Dívurnar þann 5.des (nei, Veddi er ekki með í því)... þá er þetta næsti valmöguleiki!!!

Dýrindis plakat hefur litið dagsins ljós í fjólubláum vetrarbúningi. Verst þykir mér hvað Seth toppar mig léttilega í brjóstaskoruþemanu en maður lifir með þessu.

Eins og sjá má þá er heljarinnar veisla á DECO að tónleikum loknum og hvet ég alla, og þá sérstaklega Singlurnar (sem hata hreint ekki að kíkja út á galeiðuna) að tygja sig á tónleikana og fagna svo með Vedda að þeim loknum. Ég veit að aurar eru af skornum skammti þessi jólin en þið fáið nú sterkan mjöð í kaupbæti þegar á Deco er komið :)

Þið getið pantað miða beint á vefslóð: http://www.salurinn.is/event_area.asp?event_id=3936 eða í síma 5700-400.

V

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****