20.12.06

-Annáll-

Kæru vinir nær og fjær!

Þetta hefur verið viðburðarríkt og skemmtilegt ár og ætti að bera vott um enn betra ár framundan.

Við byrjum á hörkutólinu Halla sem kláraði sín síðustu próf í lagadeild HÍ í maí ásamt því að kenna á píanó hjá Tónlistarskóla Árbæjar og spila með Jet Black Joe á hinum ýmsu böllum og fögnuðum út um land allt. Halli sagði svo skilið við píanókennsluna í Árbænum til að einbeita sér að "öðrum lögum" en lokaritgerðin hans um alþjóðlegan refsirétt á Íslandi hafði forgang í sumar ásamt því að sinna stöðu yfirleiðbeinanda hjá Vinnuskóla Reykjavíkur. Halli útskrifast formlega sem lögfræðingur í febrúar 2007 frá HÍ. Ekki hefur það stöðvað hann í atvinnuleitinni því hann var ráðinn 1.des. hjá lögmannstofu einni og unir sér þar afar vel í góðum hópi fólks og hefur í nógu að snúast sem nýgræðingur í geiranum.

Nú er um ár síðan Veddi og Dívurnar svokölluðu sungu jólin inn fyrir mörg þúsund Íslendinga í Laugardalshöll og var mikil ánægja og heiður að því fyrir heimasætuna en það var einnig í síðasta skipti sem íslensku Frostrósirnar komu fram með þessu sniði. Árið 2006 byrjaði svo með pompi og prakt og tók Veddi einbeitta stefnu á að klára næstu plötu sem hún hefur borið í maga sér ansi lengi. Því voru Lundúnaferðirnar afar tíðar á árinu þar sem hún vann með Michael Fayne og Jamie Maher að gömlu efni sem hún hafði í farteskinu og einnig við að semja nýtt efni. Allt í allt urðu Lundúnaferðirnar 5 á árinu og afraksturinn mun líta dagsins ljós snemma á næsta ári 2007. Aldís,mín duglega og yndislega stóra systir, lauk laganámi við Kingston University í sumar og starfar nú hjá Bartercard í London. Þakkir skulu hér með færðar Aldísi fyrir að bíða ávallt með opinn faðminn handa litlu systur sem fékk húsaskjól og nægan stuðning.

Veddi tók að sér söngkennslu á Akureyri í júní þar sem hún kenndi 5-13 ára stúlkum að þenja raddböndin en samt aðallega að "brosa meira". Að venju var mikið að gera í brúðkaupunum yfir sumartímann og getur Veddi nú státað sig af því að þekkja hvern krók og kima í kirkjum landsins. Veddi bar sigur úr býtum í Ljósalagskeppninni 2006 með aðstoð íðilfagurrar raddar Regínu Óskar sem söng lagið Ástfangin eftir Vedda. Það lag er nú að finna á plötu Regínu, Í djúpum dal. Einnig á Veddi lag og texta lagsins Heillastjarna á nýútgefinni plötu Selmu og Hönsu sem ber nafnið Sögur af konum. Þar eru einungis kvenmenn laga og textahöfundar og er mjög ánægjulegt að taka þátt í slíku framtaki en konur eru jú stórmerkilegar verur. Báðar þessar plötur klýfa nú metsölulistana höfundinum til mikillar hamingju. Veddi tók sig svo til með söngvaranum Seth Sharp í sumar og setti upp amerísk/íslenska tónleika að nafni Silver er samtvinnuðu tvo ólíka menningarheima. Stendur það ennþá yfir og er gerður góður rómur að. Einnig söng Veddi í laginu Innuendos með Helga Rafni inn á plötu hans Personal Belongings sem kom út nú fyrir jólin.

Það sem hæst stendur upp úr á árinu eru öll ferðalögin. Helga Hrönn,móðir Halla, bauð fjölskyldunni í sextugsafmæli sitt á Kanaríeyjum í lok maí. Það var afskaplega kærkomið frí á þeim tíma fyrir alla og við þökkum kærlega fyrir góðar stundir. Einnig varð Árni,pabbi Vedda, fimmtugur á árinu og bauð hann fjölskyldunni í afmælisveislu á Flórída. Var það einnig kærkomið frí og þá sérstaklega fyrir foreldra Védísar sem stóðu í ströngu í bæjarstjórnarkosningum í Reykjanesbæ í vor og byggðu sér eitt stykki höll í leiðinni sem nú ber heitið "Goðasteinn" í Innri Njarðvík. Ljóst er því á öllu að fólk vill forðast margmenni á slíkum tímamótum þegar aldurinn færist yfir og flýja af landi brott til að gleyma stað og stund!

Veddi náði svo að fljúga Halla yfir til Lundúna í september og október og píska honum út aðeins í hljóðverinu. Þess má geta að þau eiga saman tvö lög á væntanlegri plötu. Þetta var þó ekki alslæmt fyrir drenginn þar sem við kíktum einnig til Bryndísar vinkonu og Fran á Spáni en þau hýstu og skemmtu okkur í tíu heila daga. Einnig kíktum við til Mónakó í nokkra daga og dvöldum þar í íbúð Ralph,hennar Aldísar systur. Það hefur því aldrei væst um okkur neins staðar enda fordekruð að staðaldri :)

Rakel mín varð svo fyrst til að trúlofa sig í vinahópnum og mun hún giftast Brynjari Erni næsta sumar við mikinn fögnuð Vedda!

Amma Halla, Halldóra Árnadóttir kvaddi okkur í mars og afi Vedda, Sigfús J. Johnsen kvaddi í nóvember eftir erfið veikindi. Mikil eftirsjá er í þeim báðum og margt hægt að læra af. Ekki laust við að maður finni stundum rakspíralyktina hans afa á einkennilegustu stöðum og minningastormur skellur á.


Séð frá "Goðasteini" hjá mömmu og pabba í Reykjanesbæ.

Við hjá Veddaranum óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og þökkum fyrir bloggárið sem er að líða.

Guð og gæfa fylgi ykkur ávallt.

Veddi

0 ...og gammar geysa!:

Menningarhornið

  • Baðstofan, Smíðaverkstæðinu ***/og hálf
  • Skilaboðaskjóðan, Þjóðleikhúsið ****
  • Fló á skinni, Leikfélag Akureyrar *****
  • Dans andi, Íslenski Dansflokkurinn *****
  • Kommúnan, Vesturport *****